Leit
Síun

Skilmálar

Viðskiptaskilmálar – Vatnsvirkinn

Seljandi er Vatnsvirkinn ehf, kt. 671184-0929, Skemmuvegi 48, 200 Kópavogur, sími: 510 1450, workwear@workwear.is

Vatnsvirkinn áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru:
Allar pantanir eru afgreiddar næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Pöntunum sem er dreift af flutningsaðilum gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar þeirra fyrirtækja um afhendingu vörunnar. Vatnsvirkinn ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða með öðrum flutningsmáta eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Vatnsvirkjanum til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Verð á vöru og sendingakostnaður.
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk. Vara er ávallt send á ábyrgð og kostnað kaupanda. Hið selda er eign seljanda þar til verðið er að fullu greitt. Samþykkt reikningsviðskipti afnema ekki eignarétt fyrr en að fullu greitt. Athugasemdir skulu berast innan 10 daga frá dagsetningu reiknings. Dráttarvextir reiknast á öll vanskil. Reikningur gildir sem ábyrgðarskírteini. Ábyrgð samkvæmt kaupalögum.

Að skipta og skila vöru
Veittur er 30 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru þá getur hann fengið endurgreiðslu og þá verður endurgreiðslan framkvæmd á sama formi og upphafleg greiðsla viðskiptavinar var framkvæmd á. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd og kostnaður vegna endursendingar fellur á kaupanda.

Lög og varnarþing.
Íslensk lög skulu gilda um viðskiptaskilmála þessa. Rísi ágreiningur milli aðila skal leitast við að leysa hann með samkomulagi. Um efni þessara viðskiptaskilmála eða vegna brota á þeim má bera viðkomandi mál undir kærunefnd þjónustu- og lausafjárkaupa hjá Neytendastofu. Ef ekki næst samkomulag skulu ágreiningsmál rekin fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.